|
|
 |
Melkorka Ólafsdóttir
Melkorka Ólafsdóttir stundaði flautunám á
Íslandi hjá Bernharði S. Wilkinssyni, Hallfríði
Ólafsdóttur og Maríu Cederborg. Vorið 2005 lauk
hún B.Mus. gráðu frá Konunglega Konservatoríinu
í Haag hjá Emily Beynon, fyrsta flautuleikara Concertgebouw
hljómsveitarinnar. Hún lauk mastersgráðu frá
Konservatoríinu í Amsterdam ári síðar.
2006-2007 stundaði Melkorka mastersnám með sérhæfingu
í hljómsveitar- og kammertónlist við Guildhall
School of Music and Drama. Í síðastnefndum skóla
hlotnuðust henni James Galway verðlaunin. Árin 2005-2008
sótti hún, samhliða öðru námi, mánaðarlega
tíma til Patrick Gallois í París og lauk hjá
honum Premier Prix og Prix de Exellance, hvorutveggja með heiðursverðlaunum
dómnefndar.
Melkorka hefur sótt fjölda námskeiða innan lands
sem utan: hjá William Bennett, Peter Loyd, Jeanne Baxtresser, Michel
Debost, Robert Dick, Patriciu Morris, Peter-Lucas Graf, Wissam Boustany,
Jacques Zoon, Paul Edmund-Davies ofl.
Melkorka hefur leikið með ýmsum hljóðfærahópum,
þ.á.m. í Orkester Norden, Sinfóníuhljómsveit
Íslands, Caput, Het Nieuw Ensamble, The Barton Workshop, í
Hollensku Óperunni, Rotterdam Fílharmóníuhljómsveitinni
og Concertgebouw hljómsveitinni. Í námi sínu
í Lundúnum vann hún með hljóðfæraleikurum
úr Philharmonia Orchestra og London Symphony Orchestra. Hún
er flautuleikari og einn stofnenda kammersveitarinnar Ísafoldar
og sinnir á tónleikaárinu 2008-2009 afleysingarstörfum
hjá SÍ.
Sumarið 2008 lagði Melkorka, ásamt fiðluleikaranum
Elfu Rún Kristinsdóttur, í tónleikaferð
um landið en þær stöllur fluttu allar einleiksfantasíur
Telemanns fyrir flautu og fiðlu í kirkjum landsins. Hún
mun leika flautukonsert Atla Heimis Sveinssonar á tónleikum
með SÍ í mars 2009 og verður með tónleika
í Tíbrá í Salnum í apríl.
Flautuleikur Melkorku hefur hljómað í Ríkisútvarpinu
sem og BBC Radio 3. Henni hafa hlotnast námsstyrkir frá
Rotary, Minningarsjóði Jean-Pierre Jacquillat, Minningarsjóðum
Margrétar Björgólfsdóttur og Halldórs
Hanssens, Glitni, og Landsbankanum ásamt verkefnisstyrkjum frá
tónlistarsjóðnum Kraumi og Tónlistarsjóði
Menntamálaráðuneytisins.
Til
baka á aðalsíðu
|
|