|
|
 |
Guðrún
Dalía Salómonsdóttir
Guðrún Dalía Salómonsdóttir er fædd
í Reykjavík árið 1981.
Hún stundaði píanónám við Tónlistarskólann
í Reykjavík undir handleiðslu Guðríðar
St. Sigurðardóttur til 2003. Þá hélt hún
til náms hjá Wan Ing Ong við Staatliche Hochschule für
Musik und darstellende Kunst í Stuttgart og útskrifaðist
þaðan sumarið 2007. Hún stundar nú framhaldsnám
í París hjá Thérése Dussaut.
Guðrún Dalía hefur leikið á ýmsum
námskeiðum, m.a. hjá Thomas Böckeler, Klaus Kaufmann,
Diane Andersen og Soshönu Rudiakov. Einnig hefur hún sótt
tíma í ljóðaundirleik hjá Prof. Cornelis
Wietthoeft.
Í nóvember 2006 fékk hún fyrstu verðlaun
í píanókeppni EPTA í Salnum, Kópavogi.
Guðrún Dalía hefur hlotið ýmsa styrki, meðal
annars úr Minningarsjóði Margrétar Björgólfsdóttur
og Minningarsjóði Birgis S. Einarsonar apótekara árið
2007.
Á undanfönum árum hefur Guðrún Dalía
leikið á fjölmörgum tónleikum á Íslandi
og í Þýskalandi, bæði sem einleikari og
meðleikari.
Til
baka á aðalsíðu
|
|